Námskeið framundan


Gæðastarf og gildi símenntunar - NÝTT!

 


Starfstengdar námsleiðir

Starfsmennt býður stofnunum og starfshópum upp á starfstengdar námsleiðir þar sem bæði er gætt að fagmennsku og sveigjanleika. Símenntun starfsfólks hefur verið sett fram á þann hátt að hannaðar hafa verið sérsniðnar námsleiðir frá u.þ.b. 20-220 stundum eftir óskum og þörfum starfsfólks. Náminu er ýmist skipt upp í sjálfstæð námskeið eða stærri námslotur sem starfsmenn velja úr í samræmi við eigin fræðsluþarfir og framtíðarsýn stofnana.

Stýrihópar starfa innan hverrar námsleiðar og eiga þar sæti jafnmargir starfsmenn og stjórnendur. Stýrihóparnir ráða hraða, framboði og fyrirkomulagi náms. Þeir geta einnig breytt áherslum og inntaki námsins ef breytingar verða á starfsumhverfi og tryggt þannig að nám úreldist ekki.

Námsleiðir Starfsmenntar eru í senn einstaklingsmiðaðar og sameiginlegar öllum starfsmönnum tiltekinna stofnana sem þeirra símenntunarkerfi. Þær ríma við starfsmarkmið stofnana og eru rauði þráðurinn í fræðslustarfi þeirra. Starfsfólk hefur því yfirsýn yfir símenntunarkerfi stofnunar í heild sinni en ferðast um það á sinn einstaka hátt. Og þar sem Starfsmennt býr yfir öflugu vefkerfi og styðst við rafræna umsýslu náms er haldið utan um námsferil hvers og eins á lokuðu, persónulegu vinnusvæði nemenda á netinu.

Á vef Starfsmenntar má sjá námsskrár og allar starfstengdar námsleiðir sem sérhannaðar hafa verið fyrir einstaka stofnanir eða starfsgreinar. Þar skrá þátttakendur sig til leiks og fá upplýsingar um efnistök, fyrirkomulag, stað og stund. Hver stofnun eða starfsgrein hefur sína eigin gátt á vef Starfsmenntar þar sem allt nám er sett fram og sér Starfsmennt um að senda reglulega út rafrænar kynningar og veffréttabréf til að minna á nám og fylgja því eftir.

Hér til vinstri má sjá starfstengdar námsleiðir og vefgátt fyrir einstaka
stofnanir eða starfsgreinar.
Smellið á tenglana til vinstri til að fara inn á ykkar vefgátt. 

 



Þú ert hér:


Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060· smennt@smennt.is · kt. 441001-2070