Námskeið framundan


Gæðastarf og gildi símenntunar - NÝTT!

 


Netnámskeið

Nám fyrir þig!  Þegar þér hentar  -  þar sem þér hentar.   Vertu með í vetur!


Starfsmennt býður upp á fjöbreytt úrval tölvunámskeiða, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.

Fjarkennd tölvunámskeið

Í samvinnu við tölvuskólann Nemandi.is býður Starfsmennt netnámskeið þar sem byrjendum og lengra komnum er kennt á tölvur og ýmis hagnýt forrit. Námskeiðin hafa hlotið frábærar viðtökur. Öll kennsla fer fram í fjarnámi, með aðferðum sem allir ráða við, undir öruggri leiðsögn og með stuðningi kennara, Bjartmars Kristinssonar. Stuðningur er bæði með netpósti og gegnum þjónustusíma nemenda sem er opinn 10-20 alla virka daga. Nám í gegnum netið er frábær leið fyrir þá sem vilja stjórna náminu sjálfir og er að auki kjörin leið fyrir þá sem ekki geta sótt  námskeið í staðnámi og hentar að geta stundað nám að heiman eða af vinnustað.

 Heiti :                  Hefst :
 Grunnnámskeið* 18. sept. 
 Outlook* 18. sept. 
 Excel-framhald* 9. okt.
 Power-Point*  9. okt.
 Myndvinnsla og myndavélar 30. okt.
 Publisher* 30. okt.
 Fjarsjóður Google- NÝTT 30. okt.
 Word-framhald* 20. nóv.
 Hugarkort- NÝTT 20.nóv.  
           
    

   Hvernig virkar fjarnám? (Smella til að opna skjal)

  
          Athugið

  •       Opið er fyrir skráningu í eina viku eftir að námskeið hefst.
  •       Námskeiðin eru sveigjanleg og ríflegur tími eftir námskeiðskeyrslu til að ljúka yfirferð ef þörf er á.
  •       Þjónustusími er opinn 10-20 alla virka daga.

* Námskeið sem voru uppfærð haustið 2010 (m.a. fyrir Office 2010) eru stjörnumerkt.

Ársaðgangur að tölvunámskeiðum

Í samvinnu við tölvuskólann Tölvunám.is býður Starfsmennt upp á aðgang að ítarlegu yfirliti aðgerða sem byggja á stuttum innslögum sem þátttakendur geta nýtt sér samhliða tölvuvinnslu í eigin starfi. Um er að ræða svokallað athafnanám (learning by doing) þar sem nám á sér stað samhliða framkvæmd og reynslu. Sú nálgun er talin festa nám enn betur í sessi.

Á vefnámskeiðinu er opið fyrir aðgang að öllum eftirtöldum forritum:

  •        Excel
  •        Word
  •        Outlook
  •        PowerPoint
  •        Access
  •        Office 2010
  •        Photoshop
  •        Lotus Notes  

Opnað verður fyrir aðgang tvisvar sinnum í haust, 1. október og 1. nóvember 2012.

Þeir sem hafa skráð sig en geta ekki nýtt sér námskeiðin eru beðnir að hafa samband við Starfsmennt, smennt@smennt.is eða 550-0060, áður en námskeið hefst. 

Ef þú hefur spurningar í sambandi við efni eða framkvæmd tölvunámskeiða er þér velkomið að hafa samband við kennara námskeiðsins,  Bjartmar Þór Kristinsson í síma 5334004.



Ummæli nemenda um námskeiðin

Þú færð 10 fyrir góð myndbönd og góða kennslu, kveðja, G. Þorsteinsdóttir


Nafn námskeiðsStaðsetning
-
Tölvunám.is - Ársaðgangur að vefnámskeiðumAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - Excel framhaldsnámskeiðAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - Fjársjóður Google-NÝTTAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - GrunnnámAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - Hugarkort-NÝTTAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - Myndvinnsla og myndavélarAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - OutlookAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - PowerPointAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - PublisherAllt landið
Tölvur og tölvunotkun - Word framhaldsnámskeiðAllt landið


* Námskeiðin eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Fræðslusetursins Starfsmenntar

 



Fræðslusetrið Starfsmennt
Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 550 0060· smennt@smennt.is · kt. 441001-2070