Starfsmennt veitir stofnunum fjölbreytta þjónust til að greiða leið lærdóms á vinnustað og efla mannauð stofnana. Um er að ræða Ráðgjafa að láni, farandfyrirlestra til stofnana og náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga. Þjónustan er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga. Ef forsvarsmenn stofnana hafa áhuga á að nýta sér tilboðin þá eru allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Starfsmenntar.
Starfsmennt sérsníðir námsleiðir fyrir samstarfsstofnanir sínar, sjá fræðsluhönnun fyrir starfshópa.
Starfsmennt veitir styrki til símenntunar.
Ráðgjafi að láni
Verkefnið Ráðgjafi að láni hefur staðið stofnunum til boða í nokkur ár og hafa hátt á sjöunda tug stofnana óskað eftir aðkomu ráðgjafas. Það er til marks um gæði þjónustunnar að algengt er að óskað sé eftir framhaldsvinnu ráðgjafans til að leggja enn betri grunn að markvissri mannauðsstjórnun. Einnig er um að ræða einstaklingsstuðning og handleiðslu til að taka á álagi og erfiðum málum. Helstu viðfangsefni ráðgjafanna sem Starfsmennt semur við eru oftast nær margskonar vinnustaðargreiningar, greiningar á fræðsluþörf, námslýsingar, hæfnislýsingar eða aðstoð við gerð starfsmanna-, jafnréttis- og heilsustefnu. Þá hefur ráðgjafinn einnig aðstoðað við innleiðingu starfsmannasamtala. Verkefni ráðgjafans eru öll á sviði mannauðseflingar og kostar Starfsmennt vinnuna að því gefnu að hún nýtist félagsmönnum aðildarfélaganna. Stjórnendur geta óskað eftir láni á ráðgjafa á skrifstofu Starfsmenntar en verkefnið hefur varað í átta ár og verið fyrirmynd að þróun samskonar þjónustu annarra fullorðinsfræðsluaðila.
Farandfyrirlestrar
Starfsmennt býður upp á fjölbreytt úrval farandfyrirlestra þar sem ríkisstofnanir geta valið áhugavert viðfangsefni á tíma sem þeim hentar best. Farandfyrirlestrarnir geta nýst vel á starfsdögum og fræðslufundum stofnana og geta varað í 2- 4 klukkustundir. Markmið fyrirlestranna er að efla símenntun og starfsþróun opinberra starfsmanna með því að gefa þeim kost á utanaðkomandi sérfræðingum til að fjalla um það sem efst er á baugi hverju sinni. Stofnanir um allt land geta óskað eftir að fá farandfyrirlestur í hús með því að hafa beint samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Að efla liðsheild
Að leysa ágreining
Að stýra jafningjum
Að takast á við erfiða viðskiptavini
Að tjá sig án kvíða
Áhugasvið og starfsánægja
Breytingastjórnun
Efling liðsheildar og vinna í teymum
Efling sjálfstrausts og áhrif sjálfsmyndar á gæði samskipta
Gerð færnimöppu og náms- og starfsferilskrár
Gildi samráðs í ákvarðanatöku
Hvað er markviss mannauðsstjórnun?
Hvatning á óvissutímum
Lærdómsstofnun – Miðlun fræðslu á vinnustað
Mótun starfsmannastefnu / heilsustefnu/ jafnréttisstefnu
Móttaka nýliða
Námsnálgun fullorðinna
Námstækni og vinnuvenjur
Ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað
Þekkingarbókhald starfsmanna
Samskipti á (kvenna)vinnustað
Samþætting starfs og einkalífs
Sáttaumleitan og samningatækni
Starfsandi og samstarfsvilji
Starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur
Starfsmannasamtöl fyrir starfsmenn
Stjórnun í erfiðu árferði
Streita, álag og erfið mál
Tímastjórnun
Um vinnustaðamenningu
Um vinnupersónuleika
Vellíðan í vinnunni
Viðbrögð við áföllum á vinnustað
Viðtalstækni/Samtalstækni
Vinnugildi og siðfræði starfs
Vinnustaðurinn í erfiðum breytingum
Vinnuumhverfi –heilsa – lífstíll
Þjónustustjórnun
Styrkir til símenntunar
Starfsmennt veitir styrki og aðstoðar stofnanir við umsóknir til að efla símenntun og starfsþróun.
Starfsmenn Starfsmenntar veita allar nánari upplýsingar um þá þjónustu sem hér er kynnt og eru almennir starfsmenn jafnt sem stjórnendur hvattir til að hafa samband.
Skráning í nám og námskeið á vegum Starfsmenntar er á vefnum. Við skráningu fær hver einstaklingur aðgang að heimasvæði með upplýsingum allt nám sem hann hefur tekið á vegum setursins og þátttökuskjölum til útprentunar. Á heimasvæðinu eru nemendur einnig hvattir til að gefa sitt álit á þjónustunni í stuttri könnun þegar skjöl eru prentuð út. Á þennan hátt er tryggt að rödd notenda komist til skila.